KÆRLEIKSBÖND 160x160
KÆRLEIKSBÖND eru ósýnilegir þræðir sem tengja hjörtu saman, yfir fjarlægðir, ár og æviskeið. Þau sjást ekki alltaf með augunum, en þau finnast í rótum tindanna tveggja, í tryggðinni, samstöðunni, í minningunum og í þeirri hlýju sem heldur fjölskyldu saman þótt lífið leiði hvern og einn á sína eigin braut. Í KÆRLEIKSBÖNDUM býr styrkurinn, samstaðan, seiglan, gleðin, hláturinn, sögurnar og allt það sem verður að heimili í hjartanu. Þau minna okkur á að við erum sterkari saman, að rætur okkar liggja djúpt og að kærleikurinn finnur alltaf leið heim. Tindarnir eru stækkuð brot úr Eystrahorni.
340.000 kr.Price

