top of page
VOR 120x150.

VOR 120x150.

V O R

Verkið er VOR er innblásið af ljóði eftir DAVÍÐ STEFÁNSSON

Nú skil ég stráin

Nú skil ég stráin, sem fönnin felur

og fann þeirra vetrarkvíða.

Þeir vita það best, sem vin sinn þrá,

hve vorsins er langt að bíða.

Að haustnóttum sá ég þig sigla burtu,

og svo komi hinn langi vetur.

Þótt vald hans sé mikið, veit ég þó,

að vorið, það má sín betur.

Minningin talar máli hins liðna,

og margt hefur hrunið til grunna...

Þeir vita það best, hvað vetur er,

sem vorinu heitast unna.

En svo fór loksins að líða að vori

og leysa mjallir og klaka.

Ég fann, að þú varst að hugsa heim

og hlaust að koma til baka.

Þú hlýtur að vera á heimleið og koma

með heita og rjóða vanga,

því sólin guðar á gluggann minn,

og grasið er farið að anga

    230.000krPrice
    bottom of page